kastro.
← Öll þjónusta

Öryggi og viðnámsþróttur

Þekktu áhættuna. Forgangsraðaðu rétt.

Afmarkaðar öryggisyfirferðir og hagnýtar úrbætur á aðgangsstýringu, tölvupósti og vernd gagna.

Athuga svigrúm fyrir verkefni ↗

Staða nýrra verkefna: Takmarkað svigrúm.

Það sem við getum aðstoðað við

Öryggisyfirferð

Yfirferð aðganga, heimilda og stillinga ásamt forgangsröðun mikilvægustu úrbóta.

Tölvupóstur og lén

Mat á SPF-, DKIM- og DMARC-stillingum og aðstoð við að framkvæma samþykktar breytingar.

Afritun og endurheimt

Yfirferð afritunar og skipulagning endurheimtarprófana svo hægt sé að sannreyna forsendur.

Verklag og vitund

Skýrar öryggisreglur og ábyrgð sem nýtast fólkinu í fyrirtækinu.

Skýrt umfang frá upphafi.

Við ákveðum hverju þarf að breyta, hverju við skilum og hvernig verkið er afhent. Tímasetningar og verð liggja fyrir áður en vinna hefst.

  1. Umfang

    Stutt samtal um stöðuna og hvað þig vantar. Þú færð skriflegt umfang, tímaáætlun og verð áður en nokkuð hefst.

  2. Vinna

    Yfirferðin eða innleiðingin sem samið var um. Við höldum þér upplýstum á leiðinni og breytum engu utan umfangsins.

  3. Afhending

    Skriflegar niðurstöður eða skjölun, forgangsraðaður listi yfir næstu skref og yfirferð með teyminu þínu.

Skoða undirbúning úttekta

Beint samband.

Samhliða eigin vöruþróun tökum við að okkur afmörkuð verkefni fyrir fyrirtæki. Umfang og tímasetningar eru staðfest áður en vinna hefst.

Athuga svigrúm fyrir verkefni ↗andri@kastro.is

Takmarkað svigrúm.